Gamalt og Gott Gerplufólk

04.11.2009 11:55:00 / ellis

Á næstunni

Jæja!

1.  Peysurnar ættu vonandi að verða komnar í næstu viku, so that´s that....

2.  Ég er búinn að taka frá fimleika salinn frá 17:00 og e-ð frameftir og hátíðarsalinn upp í Gerplu um kvöldið laugardaginn 19. desember.....svo að litlu jólin eru on.  nánara skipulag hvað það varðar verður birt síðar.  Eða setjum bara deadline á að skrá sig í allann pakkan, hann er 16. desember.  s.s. skrá sig til að taka þátt í GGG sprellinu niðrí sal fyrr um daginn og svo hlaðborðinu og leikjunum um kvöldið....á erk3@hi.is, en ef fólk er busy þá kemur það bara ef það kemur.  það er bara betra fyrir mig að sjá hversu margir komi til að maður geti skipulagt einhverja sniðuga leiki og svoleiðis um daginn og kvöldið......annars er öllum GGG-liðum velkomið að koma.


3.  Og svo vil ég benda á að um helgina falla allar æfingar niður sökum, mótahalds í Gerplu. 

4.  Ég vil minna fólk bara á að fylgjast með svona alhliða Gerplu upplýsingum á Gerpla.is, en umsjónarmenn þeirra síðu eru farnir að vera mun duglegri heldur en áður við að henda inn upplýsingum um flest allt sem varðar gerplu.... so check it.

5.  Voruði búin að sjá þetta? 
http://www.dv.is/frettir/2009/11/1/heimsins-versta-ran-myndband/
Hann væri góður í GGG.....stendur alltaf aftur upp....

Annars var það ekki meira.


Elli


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.08.2009 21:23:39 / ellis

Upplýsingapakki

ja!

Nokkrir hlutir:

STUNDATAFLAN

GGG1 -
Sun 15:00 - 17:00
Þri 06:45 - 07:45
Fim 20:00 - 22:00

GGG2 -
Sun 14:00 - 16:00
Þri 06:45 - 07:45
Fim 19:00 - 21:00

Svona er þetta í vetur, þetta er bara svona rosalega Artý stundatafla sem
sett er uppá heimasíðunni, en svona verður þetta í vetur. m´kay?

SLYS
Nú eftir fyrsta tímann er ég strax búinn að frétta af því að einhverjir
ákváðu að prófa að hoppa á hnakkann á sér Daði Klipp t.d. og einhver
annar, á trampólín brautinni, við ykkur sem eruð að slasa ykkur svona á
æfingum, ef þið finnið til ekki hika við að koma og tala við okkur
þjálfarana og spyrja okkur hvernig sé best að draga úr afleiðingum
óhappsins. Það þýðir lítið að detta og segja að allt sé í lagi þegar að
þjálfarinn spyr og þora svo ekki að segja "hey hr. eða fraulein þjálfari
svo virðist vera sem ég hef slasað mig við þessa byltu gætiru vinsamlegast
hlúð að mér í augnablik." því ef þið tjáið ykkur svona þá mun þjálfarinn
segja " já auðvitað nemandi kær til þess er ég," svo munið þið faðmast
kannski kyssast smá eða kela fer eftir spennuni sem er í loftinu eftir
slysið, þetta verður pottþétt svona montage moment með "why can´t we be
friends" með WAR sem undirspil. Sóttur verður klaki, sárabindi Straujárn
( Boondocksaints)eða whatnot fer bara eftir því hversu alvarleg óhöppin
eru. En þið verðið að tala við okkur, USE WORDS hafiði ekki séð Nell með
Jodie Foster? ef ekki þá vitiði hvað laugardagskvöldið fer í. Bottom line
talið við okkur, Við erm vinir þínir, þið borgið okkur fyrir að vera vinir
ykkar, .... m´kay?

Svo ef það eru einhverjar spurningar ekki hika við að senda á mig línu og
ég skal annaðhvort gefa ykkur greinagott svar, ljúga eða benda ykkur á
þann sem getur svarað. Mér er t.d. ekki lengur treyst fyrir peningamálum
eftir október 2008, þannig að hún Heiðrún Klara
( Heidrunk(hja)gerpla.is ) sér
um allt þannig.

Ef ykkur finnst ég skipta hópunum upp e-ð skakkt talið þá við mig, og
sjáum hvort við getum ekki bætt úr því.

Annars, hef ég ekki mikið meira við ykkur að segja, eða jú ég held að ég
hafi sent tóm bréf til ykkar áðan, en það gerðist sökum þess að ég er með
svo feita putta að stundum í staðin fyrir að ýta á L, Æ, ' eða
spurningamerki þá ýti ég á enter takkann.

Lög dagsins:
Slug feat Vakill - Fallen
Emperor of the sun - walking on a dream
White Lies - Farewell to the Fairground
Atmosphere - You make me Wanna

og setningin:
"Melvin Purvis: What keeps you awake at nights, Mr. Dillinger?
John Dillinger: Coffee. "


Kærleiksknús og kinnhestur
Ellis


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.08.2009 09:00:06 / ellis

Ný Önn.

Jæja!

MÆTINGAR- BREYTT SJÁ SUNNUDAGANA!!!!
GGG1
    Fim   20:00 - 22:00
    Sun  15:00 - 17:00
    Þri    06:45 - 07:45

GGG2
    Fim  19:00 - 21:00
    Sun  14:00 - 16:00
    Þri    06:45 - 07:45

NÝLIÐAR - ÞJÁLFARAMÁL
Ætlað henda inn nokkrum upplýsingum varðandi þessa önn enn nýjir meðlimir ásamt þjálfurum eru að koma inn í hópinn.  Eins og málin eru þjálfaramegin, þá virðast 5 nýjir aðilar ætlað koma inn í hópinn en það eru Björk, Alex, Nik ( sko Sigrún mín, loksins einhver sem þú diggar) Ye og Magnús.  Alex hefur þjálfað GGG áður þegar hann var í heimsókn hér í fyrra þá tók hann þátt í nokkrum æfingum við góðar undirtektir.  Magnús hefur verið mjög lengi í áhaldafimleikum hjá Nikolay og Genadí sem eru þrusugóðir þjálfarar, svo ég býst ekki við neinu öðru en awesomeness frá honum Magnúsi.  Ye er oldschool kínverskur þjálfari sem hefur verið að þjálfa í Gerplu í mörg ár og er kjörinn til að tækla grundvallar atriðin með honum Nik. Björk var í landsliðinu þegar hún var í áhaldafimleikum og er núna í P-1, og hefur staðið sig með prýði þegar að kemur að þjálfun, svo þetta virðist ætlað verða mjög góður vetur fyrir GGG.   Svo munu Axel, ég, Jacob og Malou einnig vera þarna á vappi.  Það eru hugmyndir á teikniborðinu um að stofna annan svona Malou keppnishóp en ekkert hefur verið ákveðið í þeim efnum, sem stendur eru aðeins GGG1 og GGG2.  


GGG1 og GGG2?
Hver er munurinn á þessum tveim hópum, well GGG1 eru þeir sem eru komnir lengra og munu þar af leiðandi taka flóknari upphitanir og meiri kröfur gerðar á framfarir hjá þeim í vetur.  Meira acro í upphitun, skella inn heljastökkum og einhverjum tengingum. markmiðin stærri og meiri heldur en hjá GGG2 þar sem að þeir sem eu að stíga sín fyrstu skref í fimleikum, fá mun meiri leiðsögn í grundvallar atriðinum, til að það hafa góðan grunn til að byggja á síðar í vetur.  Ef fólk sýnir mikil framför eða að það eigi frekar heima í GGG1 þá gæti svo farið í vetur að aðilar séu færðir upp um hóp, en við sjáum bara til með það, þar sem að maður hefur ekki séð getu allra þeirra sem eru að byrja núna í vetur.

CHATTY KATHY´S
Ég var að heyra að fólk sé búið að ákveða hver ástæðan sé á bakvið minnkaðri aðkomu minni að hópnum, en ég vil bara árétta það að ein af aðalástæðunum fyrir því að ég taki eingöngu að mér þrekið og fimmtudagana er sú að núna í vetur þarf ég að tækla meistararitgerð í lögfræði og hef þar af leiðandi minni tíma til að vera að stússast í þjálfun.  GGG er ekki eini hópurinn sem ég minnka þjálfum mína hjá heldur er ég að auki hættur að þjálfa Special Olympics liðið í Gerplu.  Svo þeir aðilar sem telja að ástæðan fyrir minnkuninni eru einhver bjánaleg hissy fits þá er það bara vitleysa.  Margar taugar hafa verið pirraðar frá því að ég byrjaði með GGG og hefur það haft lítil áhrif á það hvernig ég tek á hópnum.  Ef þið horfið bara á sumarið þá gekk nú ýmislegt á þá en samt held ég nú bara að sumarið hafi gengið frekar vel og hefði í raun ekki getað enda mikið betur(þó að Alli hafi áður fengi betra nautakjöt), en ef ég ætla einhverntíman að vera ríkur, og fá rauðri málningu skvettri á bílinn minn þá verð ég bara að einnbeita mér meira að náminu núna á kostnað þjálfunarinnar. 

Annars var það ekki meira, eða jú það mættu nú alveg fleiri mæta í þrekið.......

Lög dagsins:
Eminem & Obie Trice - Snitch
Slug feat Brother Ali   - Blah blah blah
Atmosphere               - God loves Ugly

Og Setningin:
"She is really proud of me, and I'm gonna become something, man! As soon as she dies, I'm gonna become a civil engineer. I'm gonna design septic tanks for playgrounds. Little kids can take shits! You idiot, what the hell do you do? "

» 3 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill